Monday, October 30, 2006

Í fréttum er þetta helst..

Skólastrákurinn afskar tveggja vikna fjarveru sína. Lítið fréttnæmt hefur verið að gerast og því ekki talist ástæða til að birta fréttir. En nú hefur nýtt mál komið upp.

Lögreglan í Danmörku er á höttunum eftir íslenskum hryðjuverkasamtökum. Samkvæmt heimildum skólastráksins þá eru þessi samtök beintengd mjólkuriðnaðinum hér á landi og rússnesku mafínunni. Kaupþing banki tengist þessu máli einnig, en grunur liggur á að þeir fjármagni starfssemi Rússnesku mafíunnar í gegnum banka í Lúxemborg.

Undarlegir atburðir hafa átt sér stað út í litlu Danmörku. Mjólkurfélög hafa orðið fyrir miklum skaða og hefur mikil rýrnum á mjólkurvörum átt sér stað. Leyniskyttur eru sagðar hafa stráfellt niður mjólkurkýr í hundraðatali og kettlingar hafa fundist syndandi um í mjólkurkörum hjá stærstu framleiðundunum.

Lögreglan hefur tekið starfsmenn fyrirtækisins Mjólku ehf. til yfirheyrslu varðandi málið. Talið er að mjólka ætli að kaupa upp mjólkurfyrirtæki í Danmörku og nýti sér hryðjuverkamenn og leyniskyttur til að fella allt um koll úti til að geta keypt fyrirtækin á sem minnstu verði.

Mjólkusamsalan er ekki talin vera viðriðin málið, enda er hún á spenanum hér á Íslandi og hefur ekki í huga að leita út fyrir landsteinana.

------ UPPFÆRT! BRJÓTANDI FRÉTTIR ------

Framkvæmdastjóri Mjólku ehf hefur verið handtekinn. Aðspurður sagðist hann hafa ráðið til vinnu mjólkurþyrsta kettlinga til að knésetja mjólkuriðnað í Danmörku. "Þeir munu lepja upp hvern einasta dropa í Danmörku" Sagði framkvæmdastjórinn þegar hann var færður inn í fangaklefa lögreglunnar.

Lögreglan hefur í kjölfarið handtekið kettlinga á heimsvísu sem eru tengdir þessari starfssemi. Rassíur voru gerðar í Rússlandi, Lúxemborg, Danmörku, Íslandi og KBbanka.

Það er hægt að segja með vissu að réttlætið hafi sigrað og enn einni innrásinni á litlu Danmörku hafi verið bugað frá.

Höfuðpaurar samtakanna sitja núna í einangrun í Hrísey og sleikja sárin. Þeir munu þurfa súpa seiðið af súrri mjólk næstu 10 árin.