Tuesday, October 03, 2006

Nördalegt neyðarástand

Kalla þurfti út lögregluna í Reykjavík í dag vegna umsáturs um Háskóla Íslands. Nátturusinnaðir nördar höfðu ruðst inn í byggingar skólans og tekið völdin. Nemendur og kennarar urðu fyrir miklu aðkasti að völdum nördana, en þeir voru komnir í þeim tilgangi að hreinsa skólan af „Stafrænni illsku“.

Nördanir gerðu upptæk ýmis nauðsynleg tæki sem fólk þarfnaðist. Vasareiknum var stolið ásamt fartölvum og stafrænum klukkum. Öllu þessu var safnað saman fyrir framan aðalbygginu og brennt. Þegar eldurinn logaði sem mest rifu þeir sig allir úr fötunum og hófu að þylja töfraorð sem rekja má til fyrstu nördanna á steinöld.

Stafræn illskan svíkur þig
Rommballa sjúmballa digitalibomm
Tekur síðan burtu þitt menningarstig

Látið ekki vélar gera mannaverk
Rommballa sjúmballa digitalibomm
Því þær eru gerðar af Satans klerk

Frelsaðu okkur frá vélavæðingu
Rommballa sjúmballa digitalibomm
Svo við fáum ekki heilablæðingu

Eftir öll átökin við dansinn og óhreinan raftækjareykin frá eldinum duttu nördarnir niður í asmaköstum og voru teknir í hald af lögreglunni.