Sunday, November 19, 2006
Tuesday, November 14, 2006
Peningar friða ekki hinn níska, en gera hann ágengari.
Skólastrákurinn ræddi við heimildamann sinn innan Seðlabanka Íslands og fékk í kjölfarið rjúkandi heitar upplýsingar. Ástæða lánstöku ríkisins er allt önnur en ríkið gefur upp. Raunveruleg ástæða ríkisins er tvíþætt eins og áður var getið en raunverulegar ástæður munu vera þessar.
- Nýverið vann Árni Johnsen stóran sigur í flokkskosningum. Árni er því pottþéttur inn á þing. Þeir 5 milljarðar sem voru gefnir upp sem ófyrirséður kostnaður vegna Kárahnjúkavirkjunar eru í raun og veru ófyrirséður kostnaður vegna komu Árna á þing. Talið er að ríkið muni þurfa þessa upphæð til að leiðrétta væntanlegan fjárhalla sem mun koma með setu Árna, en hann ætlar á næstu árum að byggja sér risastóra höll í Abu-Dhabi.
- Restin af peningunum, eða 115 milljarðar munu fara í fjármögnun til frekari ofsókna á Baug. Nýverið á fundi ríkisstjórnar var rætt um að of litlum fjármunum hefði verið eitt í einelti hér á landi og þyrfti að ráða bót á því meini. Ríkisstjórnin gerir sér miklar væntingar um að geta knésett Baug og í kjölfarið farið að leita á Björgólfsfeðga. Bókhald ríkistjórnar sýnir að Björgólfsfeðgar hafi sloppið einkar vel út úr ofsóknum og munu því væntanlega 3 milljarðar fara í undirbúningsvinnu Björgólfsofsóknarnefndarinnar.
Þess má geta að ofsóknir ríkisstjórnar á komandi ári 2007 verða styrktar af Ekstrabladet.
Höf undur Ólafur Kári ritlaði á þeim heilaga tíma 17:02 |
Monday, November 13, 2006
Að vera fylltur fúllri fýlu
Skólastrákurinn er á engan veginn sáttur við þessa framkomu og ætlar ekki að láta þetta viðgangast. Skólastrákurinn ætlar í átak. Hann ætlar alltaf að bjóða góðan daginn og vera hress og kátur við starfskonurnar. Hann ætlar með þessari aðferð að ná fram lífeðlislegri svörun hjá konunum og sjá hvort þær geti brosað og jafnvel hreyft augun að einhverju marki.
Frekari niðurstaða er að vænta frá rannsóknarstofu Skólastráksins, en þangað til er fólk hvatt til að þynna skólakaffið sitt út með eftirfarandi hlutum.
- Vatni
- Mjólk
- Sykri
- Prozak
Takk fyrir.
Höf undur Ólafur Kári ritlaði á þeim heilaga tíma 11:59 |
Thursday, November 09, 2006
Paradigmatic information processing.
Takk fyrir
Höf undur Ólafur Kári ritlaði á þeim heilaga tíma 13:53 |
Sunday, November 05, 2006
Að gefnu tilefni...
...Mjólkusamsalan er ekki talin vera viðriðin málið. Vantar R. Innsláttarvilla.
...í þeim tilgangi að hreinsa skólan. Hér er erfitt að segja til hvort um sé að ræða innsláttarvillu eða stafsetningarvillu. Orðið ætti að skrifast sem svo: Skólann.
...og óhreinan raftækjareykin. Hér er um stafsetningarvillu að ræða því það vantar eitt N. Orðið ætti að skrifast sem svo: Raftækjareykinn.
...niður í asmaköstum. Hér er spursmál um hvort þetta sé í raun stafsetningarvilla. Samkvæmt ráðleggingum er sagt að orðið ætti að vera astmaköstum en ekki asmaköstum. Nútímaleg íslenska eða ekki, enda er orðið astmi tökuorð held ég.
Hálsin þinn stífnar þegar... Hér er nokkuð gróf villa á ferð og algjörlega óafsakandi. Hér vatnar eitt N í orðið Hálsinn.
...tvær ókunnungar sterkar. Hér er ekki um stafsetningarvillu að ræða. Innsláttarvilla.
Skólastrákurinn biður lesendur sína innilega afsökunar og vonar að þeir sjái sér fært að fyrirgefa honum. Notendur geta nálgast endurgreiðslu í tengslum við netnotkun sem hefur farið í lestur þessarar síðu hjá þjónustuaðilum sínum.
Höf undur Ólafur Kári ritlaði á þeim heilaga tíma 12:57 |