Áttu börn og buru...
Skólastrákinum þykir mikill heiður í því að tilkynna komu nýs barns í þennan heim. Þann 17. nóvember klukkan 3 að nóttu til fæddist 1.stk drengur. Hann kom í heiminn með keisara og var einar 17 merkur og 48cm.Hvurn andskotann ertu að gera hérna, veit mamma þín að þú ert hérna???
Skólastrákinum þykir mikill heiður í því að tilkynna komu nýs barns í þennan heim. Þann 17. nóvember klukkan 3 að nóttu til fæddist 1.stk drengur. Hann kom í heiminn með keisara og var einar 17 merkur og 48cm.
Höf undur
Ólafur Kári
ritlaði á þeim heilaga tíma
19:59
|
Skólastrákurinn ræddi við heimildamann sinn innan Seðlabanka Íslands og fékk í kjölfarið rjúkandi heitar upplýsingar. Ástæða lánstöku ríkisins er allt önnur en ríkið gefur upp. Raunveruleg ástæða ríkisins er tvíþætt eins og áður var getið en raunverulegar ástæður munu vera þessar.
Þess má geta að ofsóknir ríkisstjórnar á komandi ári 2007 verða styrktar af Ekstrabladet.
Höf undur
Ólafur Kári
ritlaði á þeim heilaga tíma
17:02
|
Skólastrákinum finnst það farið að vera mjög niðurdragandi að fara í kaffisöluna hérna í skólanum. Konurnar sem vinna þar yfirleitt eru svo fýldar og leiðinlegar að það hálfa væri nóg. Hann reynir að mæta þarna með bros á vör og hýr á brún en ekkert gengur eftir. Alltaf sama fýlan, það er kraftaverki líkast ef honum er boðið góðan daginn. Þetta er alls ekki nógu gott. Er einhver sérstök ástæða sem má finna fyrir þessu? Er þetta ættgengur erfðasjúkdómur sem gengur á milli sjoppukvenna?Frekari niðurstaða er að vænta frá rannsóknarstofu Skólastráksins, en þangað til er fólk hvatt til að þynna skólakaffið sitt út með eftirfarandi hlutum.
Höf undur
Ólafur Kári
ritlaði á þeim heilaga tíma
11:59
|
Ég sit í tíma í sögu sálfræðinnar. Kennarinn hefur verið að útskýra Paradigm síðastliðnar 20 mínútur með þeim fyrirvara að Paradigm sé bull og þótt það séu til meira en 23 útskýringar á hugtakinu þá á það ekki við neitt sem við erum að tala um.Þrátt fyrir þetta sækja á mig hugsanir. Hugsanir um risavaxnar rottur.
Höf undur
Ólafur Kári
ritlaði á þeim heilaga tíma
13:53
|
Vegna kvörtunar sem barst í dag þann 5. nóvember hefur skólastrákurinn yfirfarið nýlegustu texta á þessari litlu vefsíðu. Í kvörtuninni kom fram að mikið væri stafsetningarvillur og annan slíkan viðbjóð. Hefur höfundur því farið yfir síðustu sjö færslur.
Höf undur
Ólafur Kári
ritlaði á þeim heilaga tíma
12:57
|